UTF - Upplýsingatæknifélagið

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Þjónusta

Þjónustusvið UTF nær yfir stóran hluta upplýsingatækninnar.  Til hægðarauka er hér stiklað á því helsta.

Þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni, stór sem smá.

Tölvu-/hugbúnaðar-/tækni fyrirtæki sem starfa við að þjónusta fyrirtæki hafa hag af því að geta kallað til sérfræðinga sér til aðstoðar.  UTF hefur frá stofnun aðstoðað slík fyrirtæki við margvísleg verkefni.  Sérfræðingar UTF eru þá fengnir til ráðgjafar við sérhæfðari hluta verkefna meðan þjónustufyrirtækið sinnir jafnt sem áður daglegum rekstri og/eða líkur við verkefnið.  Þau fyrirtæki sem þurfa á sterku baklandi að halda er bent á að hafa samband.

Lítil og meðalstór fyrirtæki/stofnanir

Það er jafnmikilvægt fyrir alla að sá vélbúnaður og hugbúnaður sem fjárfest er í virki á þann hátt sem til er ætlast.  Gæta þarf sérstaklega að þeim kostnaði sem myndast við uppsetningu, viðhald og daglegan rekstur.  Sé búnaðurinn rétt settur upp og viðhaldið af reynslumiklum sérfræðingum fer lítill tími til spillis.  Viðskiptavinurinn sparar bæði í rekstri tölvukerfisins svo ekki sé talað um sparnaðinn í því að tölvuumhverfið virki alltaf eins og til er ætlast.

Fyrirtæki á þessari stærðagráðu eru að keyra allt frá SBS (Small Business Server) og upp í að keyra hverja þjónustu á eigin serverum, sbr, Exchange (póstur), ISA (eldveggur), File/Print og fl.  Sérfræðingar UTF hafa mikla reynslu af rekstri slíkra kerfa og eru að auki vottaðir.

Tölvudeildir fyrirtækja/stofnana

Í stærri fyrirtækjum eru oftast starfandi tölvudeildir.  Í sumum tilvikum eru þetta fjölmennar deildir.  Sérfræðingar UTF hafa áralanga reynslu af að starfa með mörgum þessara deilda.

Tölvudeildir eru hvattar til að setja sig í samband við UTF og athuga hvort ekki náist fram hagræðing og sparnaður í rekstri deildarinnar með aðstoð sérfræðinga UTF.

 

Borði

Sími: 520-7070

Vesturvör 32a, 200 Kópavogur

Kt: 430309-0560