UTF - Upplýsingatæknifélagið

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Vírusar og malware

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Þreytt(ur) á að bíða eftir tölvunni þinni?

Nú sem aldrei fyrr þeysa vírusar og allskyns malwaresýkingar um internetið í þeim tilgangi einum að sýkja vélina þína og í framhaldinu, stela viðkvæmum upplýsingum um þig. Mikill hægagangur í tölvu er góð vísbending um að ekki er allt í lagi

Til þess að verjast slíkum sýkingum er gott að hafa eftirfarandi í huga

- Sjáðu til þess að vélin þín sé uppfærð með því að heimsækja Windows update
- Vertu með góða vírusvörn eins og t.d. Bitdefender, Norton eða NOD32. Einnig eru til ókeypis varnir, en þær eru takmarkaðar. Ein góð ókeypis vörn heitir AVG
- Ekki opna neinn tölvupóst sem þú kannast ekki við. Hentu honum strax!
- Keyrðu vírus og spywarescan einu sinni í mánuði til að ganga úr skugga um að engin sýking sé til staðar
- Settu spurningamerki við allar skrár sem er verið að senda þér í gegnum MSN messenger og í gegnum tölvupóst
- Ekki smella á alla linka sem þú færð senda í gegnum Facebook eða MSN messenger nema að vel athuguðu máli
- Reyndu að sleppa því að heimsækja vafasamar heimasíður.
- Athugaðu að þetta er ekki tæmandi listi. Það er aldrei of varlega farið!!

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 11. mars 2010 10:30  

Borði

Sími: 520-7070

Ármúli 11, 108 Reykjavík

Kt: 430309-0560